|
|||
![]() |
|||
2015-08-11 17:30:00 CEST 2015-08-11 17:30:02 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtboð ríkisvíxla RIKV 15 1116 OG RIKV 16 0215Fimmtudaginn 13. ágúst kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í flokkunum RIKV 15 1116 og RIKV 16 0215 sem eru með gjalddaga 16. nóvember 2015 og 15. febrúar 2016. Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudagurinn 17. ágúst 2015. Sótt verður um að RIKV 16 0215 verði tekin til viðskipta í NASDAQ á Íslandi þriðjudaginn 18. ágúst 2015. Nánari upplýsingar veitir Laufey Birna Ómarsdóttir, Lánamálum ríkisins, í síma 569 9631. |
|||
|