2012-02-03 12:45:00 CET

2012-02-03 12:45:03 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða í útboði óverðtryggða ríkisbréfa RIKB 16 1013


 Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 16 1013 fór fram hjá Lánamálum
ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð
buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði
söluverðið. 

                    Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 16 1013:

Alls bárust 11 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 3.450 m.kr. að nafnverði. 3
tilboðum var tekið fyrir 1.800 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 104,200 (4,96%
ávöxtunarkröfu). 

Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 7.
febrúar. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 8. febrúar 2012.