|
|||
2013-02-12 19:43:23 CET 2013-02-12 19:44:25 CET REGULATED INFORMATION Marel hf. - HluthafafundirAðalfundur Marel hf. 2013Aðalfundur Marel hf. verður haldinn í höfuðstöðvum félagsins að Austurhrauni 9, 210 Garðabæ, miðvikudaginn 6. mars nk., kl. 16:00. Dagskrá: -- Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt grein 4.13 í samþykktum félagsins. -- Breyting á samþykktum félagsins með hliðsjón af 1. mgr. 63. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995 um kynjahlutföll stjórnarmanna. -- Tillaga um að heimila félaginu að kaupa eigin hlutabréf. -- Önnur mál, löglega borin fram. Fundarstörf munu fara fram á ensku. Sérstaklega er bent á að þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn skulu tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins að minnsta kosti fimm sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar. Til þess að tillögur frá hluthöfum sem leggja á fyrir á fundinum verði teknar þar til umræðu verður að skila þeim til stjórnar félagsins eigi síðar en sjö dögum fyrir fundinn. Frekari upplýsingar um tímafresti þá sem gilda í tengslum við rétt hluthafa til að fá mál sett á dagskrá hluthafafundar, leggja fram ályktunartillögur fyrir fundinn, o.fl. er að finna á aðalfundarvef félagsins, www.marel.com/agm. Þar er jafnframt að finna allar frekari upplýsingar í tengslum við aðalfundinn, þ.m.t. ársskýrslu félagsins, drög að dagskrá fundarins, tillögur stjórnar félagsins, ársreikning félagsins fyrir árið 2012, upplýsingar um heildarfjölda hluta og atkvæðafjölda í félaginu m.v. 12. febrúar 2013, umboðsform auk upplýsinga um skjöl sem lögð verða fyrir fundinn. Endanleg dagskrá fundarins og tillögur verða aðgengilegar hluthöfum sjö dögum fyrir fundinn á framangreindum aðalfundarvef félagsins sem og á skrifstofu félagsins að Austurhrauni 9, 210 Garðabæ. Umboðsmenn hluthafa skulu framvísa skriflegum umboðum við inngang. Atkvæðaseðlar og önnur gögn verða aðgengileg á fundarstað frá kl. 15.30. Stjórn Marel hf. |
|||
|