2024-07-08 11:00:00 CEST

2024-07-08 11:00:01 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Íslandsbanki hf. - Viðskipti félags með eigin bréf

Íslandsbanki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Vísað er til tilkynningar Íslandsbanka hf. sem birt var 14. júní 2024 um framkvæmd endurkaupaáætlunar á eigin bréfum.

Í viku 27 keypti Íslandsbanki hf. (bankinn) 1.382.897 eigin hluti að kaupverði alls kr. 134.280.042 eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr)Eigin hlutir eftir viðskipti
01.07.202410:16:25100.00096,009.600.00079.290.137
01.07.202414:04:41100.00095,609.560.00079.390.137
02.07.202410:08:50150.00095,6014.340.00079.540.137
02.07.202413:13:54100.00095,609.560.00079.640.137
02.07.202415:18:14150.00095,8014.370.00079.790.137
03.07.202413:43:08200.00096,2019.240.00079.990.137
03.07.202415:14:46192.11296,8018.596.44280.182.249
04.07.202414:41:2788.08599,308.746.84180.270.334
04.07.202415:09:52300.000100,0030.000.00080.570.334
05.07.202414:35:392.70098,80266.76080.573.034
  Samtals vikan1.382.897 134.280.042

Fyrir framangreind viðskipti í viku 27 átti bankinn 79.190.137 hluti, sem nemur 3,96% af útgefnum hlutum. Í þessari umferð endurkaupa hefur bankinn keypt 3.282.897 hluti, sem nemur 0,16% af útgefnum hlutum og nemur heildarkaupverð eigin hluta samtals kr. 318.189.042 í umferðinni.

Í þessari umferð endurkaupa er áætlað að kaupa allt að 11 milljón hluti sem jafngildir 0,55% af útgefnu hlutafé bankans, þó þannig að heildarfjárhæð endurkaupanna að þessu sinni verði aldrei meiri en samtals kr. 1.000.000.000. Endurkaupunum var haldið áfram 18. júní síðastliðinn og munu standa yfir þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en til 30. september 2024.

Frá upphafi endurkaupa í febrúar 2023 hefur bankinn keypt samtals 80.573.034 eigin hluti eða sem nemur 4,03% af útgefnum hlutum í bankanum.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við viðeigandi lög og reglur, þ.á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014 og framselda reglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052, lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 og reglugerðar nr. 320/2022 um sama efni. Samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna kaupa bankans á eigin hlutum er fyrirliggjandi.

Þessi tilkynning er birt af Íslandsbanka hf. og inniheldur upplýsingar sem töldust eða kunna að hafa talist innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, varðandi endurkaupaáætlunina sem lýst er að ofan. Tilkynning þessi er gerð af Ellerti Hlöðverssyni, fjármálastjóra Íslandsbanka hf., í samræmi við upplýsingaskyldu bankans samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/1055.