|
|||
2017-10-25 18:39:13 CEST 2017-10-25 18:39:13 CEST REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarÍslandsbanki hf.: S&P hækkar lánshæfismat Íslandsbanka í BBB+/A-2 með stöðugum horfumAlþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið S&P Global Ratings (S&P) hækkaði í dag lánshæfismat Íslandsbanka úr BBB/A-2 í BBB+/A-2 með stöðugum horfum. Hækkun á lánshæfismati bankans byggir að mestu á batnandi rekstrarumhverfi íslenska bankakerfisins í kjölfar afnáms gjaldeyrishafta og lækkandi skuldastöðu fyrirtækja og heimila. Vegna þessa telur S&P að íslenska bankakerfið hafi styrkts og eiginfjárstaða Íslandsbanka batnað þegar horft er til langs tíma að teknu tilliti til áhættu í umhverfinu. Stöðugar horfur á einkunn bankans endurspegla þá skoðun S&P að íslenskt efnahagslíf muni áfram standa á traustum fótum og að bankinn viðhaldi sterkri eiginfjárstöðu á komandi árum á sama tíma og hann haldi áfram að ná fram hagstæðari fjármagnsskipan. Jón Guðni Ómarsson, fjármálastjóri Íslandsbanka: "Það er ánægjulegt að sjá lánhæfismat bankans hækka og trúna aukast á íslensku efnahagslífi og fjármálakerfi. Hækkun á lánshæfismatseinkunn bankans er í takt við hagstæða þróun á vaxtaálagi á erlendum skuldabréfaútgáfum og aukinn áhuga erlendra fjárfesta á skuldabréfum bankans undanfarna mánuði sem kemur sér vel fyrir viðskiptavini bankans. Hækkunin er jafnframt skýrt merki um góðan árangur við uppbyggingu bankans og íslensks efnahagslífs á síðustu árum." Nánari upplýsingar veita: * Fjárstýring - Jóhann Ottó Wathne, johann.wathne@islandsbanki.is og í síma 844 4607. * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 4005. [] |
|||
|