|
|||
2017-02-09 16:30:01 CET 2017-02-09 16:30:01 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarÚtboð ríkisvíxla RIKV 17 0815Mánudaginn 13. febrúar kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í flokknum RIKV 17 0815 sem er með gjalddaga 15. ágúst 2017. Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagurinn 15. febrúar 2017. Sótt verður um að RIKV 17 0815 verði tekinn til viðskipta í NASDAQ á Íslandi miðvikudaginn 15. febrúar 2017. Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569 9635. |
|||
|