|
|||
2009-08-21 13:58:24 CEST 2009-08-21 13:59:13 CEST REGULATED INFORMATION Alfesca hf. - Niðurstöður hluthafafundaViðbót við fundargerð Hluthafafundar sem haldinn var 12. ágúst 2009VIÐBÓT VIÐ FUNDARGERÐ Viðbót við fundargerð Hluthafafundar sem haldinn var 12. ágúst 2009 Fundargerð hluthafafundarins var rituð og birt sama dag og fundurinn var haldinn í samræmi við lög og reglur og starfshætti félagsins og sáu ritari og fundarstjóri um það, eins og fundurinn hafði samþykkt. Í kjölfar þess að fundargerðin var birt barst félaginu bréf þar sem farið var fram á að ákveðinna mála, sem rædd voru á fundinum, yrði getið í fundargerð. Félagið hefur ákveðið í samráði við fundarstjóra að verða við þessari ósk með því að birta bréfið sem viðbót við fundargerð hluthafafundarins. |
|||
|