|
|||
2009-10-27 12:00:41 CET 2009-10-27 12:01:41 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða í sölu íbúðabréfa og ríkisbréfaSala á íbúðabréfum og ríkisbréfum fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 10:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Í boði voru eftirfarandi flokkar að nafnverði: Flokkar Nafnverð HFF150224 4,3 ma.kr. HFF150434 3,2 ma.kr. RIKB 13 0517 3,8 ma.kr. RIKB 19 0226 3,1 ma.kr. Helstu niðurstöður voru þessar: HFF150224: Alls bárust tilboð að fjárhæð 2.826 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 1.791 m.kr. að nafnverði á verðinu 97,90 (4,11% ávöxtunarkrafa). HFF150434: Alls bárust tilboð að fjárhæð 12.210 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 3.216 m.kr. að nafnverði á verðinu 97,58 (4,03% ávöxtunarkrafa). RIKB 13 0517 Alls bárust tilboð að fjárhæð 3.850 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 1.700 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,79 (7,30% ávöxtunarkrafa). RIKB 19 0226 Alls bárust tilboð að fjárhæð 4.150 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 2.550 m.kr. að nafnverði á verðinu 104,70 (8,00% ávöxtunarkrafa). Nánari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson hjá Lánamálum ríkisins í síma 569 9633. |
|||
|