|
|||
2015-03-13 17:16:40 CET 2015-03-13 17:17:41 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirUndirritun samninga í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaðiÍ dag var skrifað undir samninga milli Lánamál ríkisins f.h. ríkissjóðs og aðalmiðlara í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði. Markmiðið með samningnum er að viðhalda aðgengi ríkissjóðs að lánsfé og efla verðmyndun ríkisverðbréfa á eftirmarkaði. Frá og með 1. apríl 2015 hafa fimm fjármálafyrirtæki heimild til að kalla sig „aðalmiðlara með ríkisverðbréf“. Þau eru: Arion banki, Íslandsbanki, Landsbankinn, MP banki og Straumur fjárfestingabanki. Helstu atriði samningsins eru þessi: -- Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að útboðum með markflokka ríkisverðbréfa. -- Aðalmiðlarar eru ekki skuldbundnir til að hafa viðskiptavakt á ríkisvíxlum nema á ríkisvíxlaflokkum sem eru útgefnir fyrir gildistöku samningsins fram að gjalddaga þeirra. -- Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að verðbréfalánum sem Lánamál ríkisins veita fyrir hönd ríkissjóðs. -- Aðalmiðlari skuldbindur sig til að setja fram tilboð í útboðum ríkisverðbréfa fyrir a.m.k. 100 m.kr. að nafnverði. -- Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir alla markflokka ríkisverðbréfa og setur fram kaup- og sölutilboð að lágmarki 100 m.kr. að nafnvirði í hvern flokk í NASDAQ kauphöllinni á Íslandi. -- Aðalmiðlari skuldbindur sig til þess að halda verðmun kaup- og sölutilboða innan tiltekinna marka sem nánar eru skilgreind í samningnum. -- Aðalmiðlara er skylt að endurnýja tilboð sín innan 10 mínútna frá því að þeim hefur verið tekið. Aðalmiðlara er heimilt að víkja út frá hámarksmun kaup- og sölutilboða ef tilteknum skilyrðum er fullnægt. -- Samningurinn gildir frá 1. apríl 2015 til 31. mars 2016. Meðfylgjandi er sýnishorn af samningi þar sem fram koma ýtarlegri upplýsingar um réttindi og skyldur aðalmiðlara ríkisverðbréfa. Frekari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson forstöðumaður hjá Lánamálum ríkisins í síma 569 9600. |
|||
|