|
|||
![]() |
|||
2014-09-25 14:38:49 CEST 2014-09-25 14:39:51 CEST REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - FyrirtækjafréttirMánaðarskýrsla Íbúðalánasjóðs ágúst 2014Íbúðalánasjóður eykur framboð leiguhúsnæðis Meginhlutverk Íbúðalánasjóðs er útlánastarfsemi vegna íbúðarhúsnæðis og að standa vörð um þau verðmæti sem sjóðnum er trúað fyrir. Í ljósi umræðu um skort á leiguhúsnæði vill sjóðurinn leggja sitt af mörkum með breyttu verklagi, en undirstrikar um leið þann ramma sem sjóðnum er settur. Nýtt verklag eykur framboð á leiguhúsnæði Á þeim stöðum á landsbyggðinni þar sem takmörkuð velta er á fasteignamarkaði hefur Íbúðalánasjóður tekið upp nýtt verklag með eignir sjóðsins. Á þessum stöðum verða þær eignir sem eru skráðar á sölu og eru í bestu ásigkomulagi jafnframt samhliða boðnar til leigu. Eftirspurn eftir leigu eða fasteignum til kaups ræður því í hvorn farveginn þessar eignir sjóðsins fara. Þannig aukast líkurnar á því að hlutfall leigu- og sölueigna sé í takt við aðstæður á hverjum stað og mætir þetta verklag því vel aðstæðum í ólíkum byggðarlögum þar sem eignir sjóðsins eru. Meirihluti eigna sjóðsins er þegar í útleigu og 75% fullnustuíbúða fara beint í leigu Íbúðalánasjóður leigir nú 920 eignir beint út og aðrar 450 eru í útleigu á vegum Leigufélagsins Kletts. Því eru í dag um 1.370 eignir í útleigu á vegum ÍLS um land allt. Íbúar í eign sem sætir fullnustu eiga kost á að búa áfram í eigninni og leigja hana. Þannig fara þrjár af hverjum fjórum íbúðum sem Íbúðalánasjóður tekur yfir beint í leigu til þeirra sem í íbúðunum búa við fullnustu. Í dag eru 983 eignir söluskráðar á fasteignasölum en með tvöfaldri skráningu mun mögulegum leiguíbúðum fjölga umtalsvert. Tekið skal fram að margar af auðum eignum sjóðsins eru ekki á svæðum þar sem eftirspurn er eftir leiguíbúðum eða eru það stórar að þær henta ekki leigumarkaði. Íbúðarhæft húsnæði jafngildir ekki leiguhæfu húsnæði Um 140 eignir eru ekki í söluferli því þær eru annaðhvort óíbúðarhæfar eða á vinnslustigi á leið í sölu eða leigu. Á leigumarkaði gilda strangari kröfur um ástand og frágang íbúða. Margar af þeim eignum sem sjóðurinn tekur yfir standast illa eða ekki þær kröfur sem leigumarkaðurinn gerir til húsnæðis nema farið sé í talsverðar lagfæringar. Sjóðurinn hefur reynt að bregðast við mikilli þörf fyrir leiguhúsnæði og farið í töluverðar endurbætur á um 530 fasteignum á síðustu tveimur árum um land allt, þó einkum á Suðurnesjum. Miklar endurbætur húsnæðis samræmast ekki hlutverki sjóðsins Hugmyndir um að sjóðurinn fari í meiriháttar endurbætur á húsnæði til að koma því í leigu samræmast illa hlutverki og heimildum sjóðsins. Þá hefur sjóðurinn enga tekjustofna til að mæta þeim miklu útgjöldum sem eru samfara jafn umfangsmiklum endurbótum. Ef farið er í slíkar framkvæmdir verða því að koma frekari fjárframlög til sjóðsins. Íbúðalánasjóður hefur aðeins tímabundna lagaheimild til að stunda leigustarfsemi Meginhlutverk Íbúðalánasjóðs er útlánastarfsemi vegna íbúðarhúsnæðis. Eftir efnahagshrunið 2008 fékk sjóðurinn tímabundna lagaheimild til þess að leigja út íbúðir, í ljósi aðstæðna í samfélaginu. Sú heimild breytir ekki því grunnhlutverki sjóðsins að lána til fasteignakaupa og standa vörð um þau verðmæti sem sjóðnum er trúað fyrir. |
|||
|