|
|||
![]() |
|||
2014-02-17 15:04:12 CET 2014-02-17 15:05:12 CET REGULATED INFORMATION Orkuveita Reykjavíkur - FyrirtækjafréttirOrkuveita Reykjavíkur endurfjármagnar fráveitulánReykjavik, 2014-02-17 15:04 CET (GLOBE NEWSWIRE) -- Í dag var undirritaður lánasamningur á milli Orkuveitu Reykjavíkur og Lánasjóðs sveitarfélaga að fjárhæð 900 milljónir kr. Lánið er til tíu ára, verðtryggt með 3,15% vöxtum, sem eru lægri vextir en á skuldabréfunum. Lánið er tekið til að endurfjármagna skuldabréfaflokk, sem Reykjavíkurborg gaf út í tengslum við fjárfestingar í fráveitukerfi, RVK 05. Orkuveita Reykjavíkur hefur greitt af þeim bréfum frá því fyrirtækið tók við rekstri fráveitu af Reykjavíkurborg árið 2006. |
|||
|