|
|||
2016-11-16 22:26:32 CET 2016-11-16 22:26:32 CET REGULATED INFORMATION Orkuveita Reykjavíkur - FyrirtækjafréttirÚtboð OR á verðtryggðum og óverðtryggðum skuldabréfum 23. nóvemberReykjavík, 2016-11-16 22:25 CET (GLOBE NEWSWIRE) -- Miðvikudaginn 23. nóvember 2016 verða boðin til sölu ný skuldabréf í tveimur flokkum Orkuveitu Reykjavíkur. Annars vegar verða boðin verðtryggð jafngreiðslubréf til tæplega 30 ára í flokknum OR090546 en í þeim flokki hafa áður verið gefnar út 4.011.724.833 kr. skuldabréf. Hins vegar verða boðin vaxtagreiðslubréf til 6 ára í nýjum flokki OR011222. Fjárfestingarbankasvið Arion banka hefur umsjón með útboðinu og kynnir það fyrir hugsanlegum fjárfestum. Útboðið verður lokað og með hollenskri aðferð, þar sem öll skuldabréf verða seld á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið verður í hverjum flokki. OR áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er að hluta eða í heild eða hafna öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega næsta virka dag eftir útboð. Nánari upplýsingar: Birgir Guðfinnsson, markaðsviðskiptum fjárfestingarbankasviðs Arion banka hf. sími 444-7337, netfang verdbrefamidlun@arionbanki.is Brynja Kolbrún Pétursdóttir forstöðumaður Fjárstýringar og greininga OR sími 516-6100, netfang brynja.kolbrun.petursdottir@or.is Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Fjármála OR sími 516-6100, netfang ingvar.stefansson@or.is |
|||
|