2017-02-24 16:52:08 CET

2017-02-24 16:52:08 CET


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Anglų Islandų
Íbúðalánasjóður - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Mánaðarskýrsla Íbúðalánasjóðs janúar 2017


Færri heimili í vanskilum

Í lok janúar nam fjárhæð vanskila útlána til einstaklinga tæpum 1,5 milljörðum
króna og var undirliggjandi lánavirði 15,5 milljarðar króna eða um 3,5% útlána
sjóðsins til einstaklinga. Heimili í vanskilum eru 849 eða 2,3% heimila sem eru
með lán hjá sjóðnum. Þannig standa um 98% heimila í viðskiptum við ÍLS í
skilum. Fjöldi heimila í vanskilum í lok janúar 2016 var 1.349 hefur þeim því
fækkað um 40% á einu ári. 

Færri íbúðir í eigu sjóðsins

Í lok janúar átti Íbúðalánasjóður 642 íbúðir eða helmingi færri íbúðir en í lok
janúar 2016. Mikil áhersla hefur verið lögð á að selja eignir og hefur sú vinna
gengið gríðarlega vel í samstarfi við Félag fasteignasala. Jafnframt hefur
innkoma nýrra eigna verið í lágmarki. En í janúarmánuði voru seldar 25 eignir á
móti þeim 5 sem komu nýjar inn í eignasafnið. Áhersla verður áfram lögð á að
fækka íbúðum í eigu sjóðsins. 

Frekari upplýsingar um stöðu lánasafns og markaðsupplýsingar tengdar útgáfum
sjóðsins má lesa í meðfylgjandi mánaðarskýrslu fyrir janúar.