|
|||
2017-02-24 17:49:51 CET 2017-02-24 17:49:51 CET REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarLandsbankinn hf. : Tilkynning um kaup Landsbankans hf. á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun - lok þriðja endurkaupatímabilsÞann 15. september 2016 birti Landsbankinn hf. tilkynningu um að bankinn byðist til að kaupa hluti af hluthöfum samkvæmt endurkaupaáætlun á þremur nánar tilgreindum endurkaupatímabilum. Þriðja endurkaupatímabilið var frá 13. febrúar 2017 til og með 24. febrúar 2017. Á þriðja endurkaupatímabili keypti Landsbankinn samtals 8.509.625 eigin hluti á genginu 10,6226 að kaupvirði 90.394.085 kr. Hvorki bankastjóri Landsbankans né framkvæmdastjórar hjá bankanum seldu hluti í bankanum á þriðja endurkaupatímabili. Landsbankinn átti 351.831.490 eigin hluti fyrir viðskiptin á þriðja endurkaupatímabili. Vegna fullnustuaðgerða hafa 119.524 hlutir færst til Landsbankans á tímabilinu. Að loknu þriðja endurkaupatímabili á Landsbankinn því 360.460.639 eigin hluti, eða sem nemur 1,5% af útgefnum hlutum í félaginu. Landsbankinn hefur keypt samtals 142.031.497eigin hluti samkvæmt endurkaupaáætluninni eða sem nemur 0,6% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur kaupverð þeirra 1.481.500.289 kr. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995. Nánari upplýsingar veita: Rúnar Pálmason, upplýsingafulltrúi, pr@landsbankinn.is og í síma 410 6263 / 899 3745 Hanna Kristín Thoroddsen, fjárfestatengsl, ir@landsbankinn.is og í síma 410 7310 [] |
|||
|