|
|||
2013-08-14 15:57:43 CEST 2013-08-14 15:58:44 CEST REGULATED INFORMATION Landsvirkjun - FyrirtækjafréttirLandsvirkjun gefur út skuldabréf til 10 áraLandsvirkjun undirritaði í dag samning um sölu á skuldabréfi til tíu ára að fjárhæð 30 milljónir Bandaríkjadollara eða að jafnvirði um 3,6 milljarðar króna. Skuldabréfið var gefið út undir nýjum EMTN (e. Euro Medium Term Note) rammasamningi fyrirtækisins um alþjóðlegar skuldabréfaútgáfur, án ríkisábyrgðar, sem undirritaður var þann 26. júlí sl. Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs: ,,Landsvirkjun hefur verið með til skoðunar, útgáfu skuldabréfa, án ríkisábyrgðar. Við höfum orðið vör við áhuga fjárfesta og því var ákveðið að ráðast í gerð nýs rammasamnings og í kjölfarið samning um sölu fyrsta skuldabréfsins án ríkisábyrgðar“. Skuldabréfið er með 4,45% föstum vöxtum. Vextir greiðast tvisvar sinni á ári en höfuðstóllinn greiðist í einu lagi í lok lánstímans. Umsjónaraðili var Arion banki hf. Nánari upplýsingar veitir Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, í síma 515-9000, netfang: rafnar@lv.is. |
|||
|