|
|||
![]() |
|||
2010-05-14 18:34:17 CEST 2010-05-14 18:35:16 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirUndirritun saminga um viðskiptavakt með ríkisverðbréfÍ dag var skrifað undir samninga við Lánamál ríkisins í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði. Markmiðið með samningnum er að viðhalda aðgengi ríkissjóðs að lánsfé og efla verðmyndun ríkisverðbréfa á eftirmarkaði. Frá 1. júní 2010 hafa fimm fjármálastofnanir heimild til að kalla sig „aðalmiðlara með ríkisverðbréf“. Þær eru: Íslandsbanki, MP Banki, NBI (Landsbankinn), Arion banki og Saga Capital Fjárfestingarbanki. |
|||
|