|
|||
![]() |
|||
2016-02-23 17:25:12 CET 2016-02-23 17:25:12 CET REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf. lýkur sölu sértryggðra skuldabréfaLandsbankinn lauk í dag lokuðu útboði á tveimur flokkum sértryggðra skuldabréfa. Alls bárust tilboð að fjárhæð 5.780 m. kr. í útboðinu og var tilboðum tekið fyrir 4.760 m. kr. Seld voru skuldabréf í LBANK CB 19, óverðtryggðum flokki sem skráður er á Nasdaq Iceland, fyrir 660 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 6,66%. Áður hefur Landsbankinn gefið út 9.280 m. kr. í sama flokki og nemur því heildarstærð flokksins 9.940 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna. Seld voru skuldabréf í LBANK CBI 22, verðtryggðum flokki sem skráður er á Nasdaq Iceland, fyrir 4.100 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 3,27%. Áður hefur Landsbankinn gefið út 9.580 m. kr. í sama flokki og nemur því heildarstærð flokksins 13.680 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 1. mars 2016 en Kvika sinnir viðskiptavakt með ofangreinda flokka sértryggðra skuldabréfa. Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref. |
|||
|