|
|||
![]() |
|||
2008-08-21 16:49:04 CEST 2008-08-21 16:50:05 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða í útboði ríkisbréfa RIKB 09 0612 og RIKB 10 0317Útboð á ríkisbréfum í flokki RIKB 09 0612 og RIKB 10 0317 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Seðlabanka Íslands kl. 14:00 í dag. Í útboðinu var óskað eftir kauptilboðum í RIKB 09 0612 fyrir allt að 10.000 m.kr. og RIKB 10 0317 fyrir allt að 5.000 m.kr. að nafnverði. RIKB 09 0612: Alls bárust 23 gild tilboð í flokkinn RIKB 09 0612 að fjárhæð 8.050 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 3.400 m.kr. að nafnverði á meðalverðinu 96,47 (13,16% flatir vextir). Hæsta verð tekinna tilboða var 96,585 (13,00%) og lægsta verð tekinna tilboða var 96,445 (13,20%). RIKB 10 0317: Alls bárust 24 gild tilboð í flokkinn RIKB 10 0317 að fjárhæð 14.375 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 5.000 m.kr. að nafnverði á meðalverðinu 91,95 (12,95% ávöxtunarkrafa). Hæsta verð tekinna tilboða var 91,95 (12,95%) og lægsta verð tekinna tilboða var 91,95 (12,95%). |
|||
|