|
|||
![]() |
|||
2015-09-24 18:57:04 CEST 2015-09-24 18:57:38 CEST REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf. : Flokkur sértryggðra skuldabréfa stækkaðurÍslandsbanki hf. hefur í dag lokið útboði á einum flokki óverðtryggðra sértryggðra skuldabréfa. Flokkurinn ISLA CB 19 var boðinn út og seldust þar 2,22 ma. kr. á ávöxtunarkröfunni 6,90%. Að þessu sinni var öllum tilboðum tekið og heildarstærð ISLA CB 19 verður nú 4,08 ma. kr. Alls hefur Íslandsbanki gefið út sértryggð skuldabréf að upphæð 44,79 ma. kr. frá fyrstu útgáfu bankans á slíkum bréfum í desember 2011. Stefnt er að töku bréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 30. september næstkomandi. Viðskiptavakt fyrir alla flokka sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka er á vegum MP Straums. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4752/ 844 4752. * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 4005. [HUG#1954451] |
|||
|