2017-05-16 19:03:10 CEST

2017-05-16 19:03:10 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íslandsbanki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Islandsbanki hf.: Niðurstaða víxlaútboðs


Íslandsbanki  hf. lauk  í dag  útboði á  víxlum til  sex og tólf mánaða. Í heild
bárust tilboð upp á 4.840 m.kr. og var tilboðum tekið fyrir 1.960 m.kr.

Seldir  voru víxlar til 6 mánaða að nafnverði 1.700 m.kr. á 5,15% flötum vöxtum.
Heildartilboð voru 3.840 m.kr. á bilinu 5,05% - 5,35%.

Seldir  voru víxlar til 12 mánaða að  nafnverði 260 m.kr. á 5,31% flötum vöxtum.
Heildartilboð voru 1.000 m.kr. á bilinu 5,29% - 5,50%.

Stefnt er á að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Iceland 23.
maí.

Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, ir@islandsbanki.is og í síma 440 3187.
  * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma
    440 4005.


[]