|
|||
2009-11-04 11:23:25 CET 2009-11-04 11:24:24 CET REGULATED INFORMATION Icelandair Group hf. - Ársreikningur-Birtingu árshlutareiknings frestað. Samkvæmt drögum að árshlutareikningi er EBITDA 8,4 milljarðar króna í þriðja ársfjórðungi 2009 samanborið við 6,2 milljarða króna á sama tíma 2008.Birtingu árshlutareiknings frestað. Samkvæmt drögum að árshlutareikningi er EBITDA 8,4 milljarðar í þriðja ársfjórðungi 2009 samanborið við 6,2 milljarða á sama tíma 2008. Birtingu árshlutareiknings 30.9.2009, sem kannaður er af endurskoðendum félagsins, hefur verið frestað fram í viku 49. Eins og fram hefur komið í upplýsingum frá félaginu er unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu þess. Þeirri vinnu miðar ágætlega en er ekki lokið og vegna þeirrar vinnu dregst gerð árshlutareiknings félagsins. Reiknað er með að mikilvægum þáttum í endurskipulagningunni ljúki í nóvember. Samkvæmt drögum að árshlutareikningi var heildarvelta Icelandair Group á þriðja ársfjórðungi 53,7 milljarðar króna og jókst um 29% frá sama tímabili í fyrra. EBITDA var 8,4 milljarðar króna en var 6,2 milljarðar króna á sama tímabili í fyrra. Afskriftir og fjármagnskostnaður hækka talsvert milli ára. Á tímabilinu janúar - september var heildarvelta Icelandair Group 108,1 milljarður króna og jókst um 28% frá sama tímabili í fyrra. EBITDA var 7,5 milljarðar króna en var 7,2 milljarðar króna 2008. Afskriftir og fjármagnskostnaður hækka talsvert milli ára. Handbært fé í lok september nam 6,1 milljarði króna en var 7,4 milljarðar í lok september 2008. Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandair Group: „Rekstarafkoma þriðja ársfjórðungs er langt umfram upphaflegar áætlanir ársins og ef horft er á rekstrarafkomu fyrir fjármagnsliði er um verulegan rekstrarbata að ræða frá fyrra ári en afskriftir og fjármagnskostnaður hækka talsvert milli ára. Almennt séð eru félög innan samstæðunnar að skila góðri afkomu á þriðja ársfjórðungi. Í erfiðu árferði, hefur starfsmönnum samstæðunnar með öflugu markaðsstarfi erlendis og kostnaðaraðhaldi tekist að skila góðri rekstrarafkomu. Jafnframt hafa ytri aðstæður svo sem gengi Evru gagnvart Bandaríkjadal og þróun olíuverðs hjálpað til. Miðað við sömu forsendur og í árshlutareikningi 30. júní sl. hafa helstu lykilstærðir , svo sem lausafjár- og eiginfjárhlutföll, lagast talsvert. Unnið hefur verið að endurskipulagningu efnahagsreiknings félagsins í nánu samstarfi við viðskiptabanka um alllangt skeið. Reiknað er með að mikilvægum þáttum þeirrar vinnu ljúki í nóvember. Vegna þessa hefur gerð árshlutareiknings dregist og er birtingu hans frestað til viku 49.“ Frekari upplýsingar veita: Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group sími: 896-1455 Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group sími: 665-8801 |
|||
|