|
|||
2013-08-29 19:56:25 CEST 2013-08-29 19:57:28 CEST REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - ÁrsreikningurAfkoma Arion banka á fyrri árshelmingi 2013Hagnaður Arion banka á fyrri helmingi ársins 2013 nam 5,9 milljörðum króna eftir skatta samanborið við 11,2 milljarða króna á sama tímabili á árinu 2012. Arðsemi eigin fjár var 8,9% samanborið við 18,8% á sama tímabili árið 2012. Arðsemi af kjarnastarfsemi var 8,1% en var 11,8% á sama tíma árið 2012. Heildareignir námu 929,0 milljörðum króna samanborið við 900,7 milljarða króna í árslok 2012. Hagnaður á öðrum ársfjórðungi nam 4,5 milljörðum króna samanborið við 6,8 milljarða króna á sama tímabili á árinu 2012. Arðsemi eigin fjár á öðrum ársfjórðungi var 13,5% samanborið við 22,7% á sama ársfjórðungi árið 2012 og arðsemi af kjarnastarfsemi nam 9,9% en 11,4% á öðrum ársfjórðungi ársins 2012. Eiginfjárhlutfall bankans í lok tímabilsins var 24,3%, sem er það sama og í árslok 2012. Helstu atriði árshlutareikningsins: -- Hagnaður eftir skatta nam 5,9 mö.kr. samanborið við 11,2 ma.kr. á sama tímabili 2012. -- Hagnaður á öðrum ársfjórðungi nam 4,5 mö.kr. samanborið við 6,8 ma.kr. á öðrum ársfjórðungi ársins 2012. -- Hagnaður af kjarnastarfsemi nam 5,4 mö.kr. samanborið við 7,0 ma.kr. á sama tímabili 2012. -- Rekstrartekjur lækka milli ára og námu 20,8 mö.kr. samanborið við 24,9 ma.kr. á sama tímabili 2012. Helstu ástæður eru lækkun vaxtamunar, sem m.a. er tilkomin vegna bindingar innlána, skuldabréfaútgáfu og minni virðisbreytinga á lánasafni. -- Hreinar vaxtatekjur námu 12,7 mö.kr. og eru nokkru lægri en á sama tíma 2012, einkum vegna lægri verðbólgu. -- Hrein virðisbreyting á útlánum nemur 0,1 ma.kr. og skýrist mest af niðurfærslum vegna gengislánadóma og töpuðum útlánum sem nema samtals 6,8 mö.kr. Einnig virðisaukningu útlána, einkum til fyrirtækja, sem nemur samtals 6,7 mö.kr. -- Arðsemi eigin fjár var 8,9% en var 18,8% á sama tímabili 2012. Arðsemi af kjarnastarfsemi var 8,1% samanborið við 11,8% á sama tíma 2012. -- Vaxtamunur af meðalstöðu vaxtaberandi eigna var 3,1% á tímabilinu en var 3,4% á sama tímabili 2012. -- Kostnaðarhlutfall á tímabilinu var 62,4% en var 52,0% á sama tímabili 2012. Hátt hlutfall nú skýrist m.a. af varúðarfærslu vegna sektar samkeppnisyfirvalda á Valitor og lægri rekstrartekna en á sama tíma 2012. Kostnaðarhlutfall af kjarnastarfsemi nam 60,3% samanborið við 52,8% á sama tímabili 2012. -- Útlán til viðskiptavina í lok tímabilsins námu 567,3 mö.kr. og hafa lítið breyst frá áramótum. -- Heildareignir námu 929,0 mö.kr., samanborið við 900,7 ma.kr. í árslok 2012. -- Eigið fé bankans í lok tímabilsins var 136,8 ma.kr. en nam 130,9 mö.kr. í lok árs 2012. Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka: „Uppgjör bankans á öðrum ársfjórðungi er í samræmi við væntingar. Staða bankans heldur áfram að styrkjast. Þar skiptir miklu aukin gæði lánasafns bankans sem og fjölbreyttari fjármögnun, en mikil vinna hefur verið unnin á þessum sviðum undanfarin misseri. Eiginfjárhlutfall bankans er áfram mjög sterkt sem og lausafjárhlutaföll. Þrátt fyrir góða afkomu á öðrum ársfjórðungi þá litast uppgjörið fyrir fyrstu sex mánuði ársins af uppgjöri bankans á fyrsta ársfjórðungi sem var undir væntingum, fyrst og fremst vegna þróunar gjaldmiðilsins og einskiptiskostnaðar hjá dótturfélagi bankans. Við sjáum aukna eftirspurn eftir lánum á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er jákvæð þróun og er um að ræða ríflega 60% aukningu á nýjum lánum miðað við sama tímabil í fyrra. Því er ekki að neita að við myndum vilja sjá eftirspurnina aukast enn meira sé horft til þess að við erum að koma úr tímabili mikillar kyrrstöðu en breyting á eftirspurn er vísbending um umsvif í hagkerfinu. Áfram er góður stöðugleiki í öllum grunnþáttum í starfsemi bankans, þó eru enn til staðar í ytra umhverfi bankans þættir sem eru sveifluvaldandi svo sem verulegar gjaldfærslur vegna gengisdóma, nú á þessu ári líkt og undangengin ár. Engu að síður sjáum við áhrif óreglulegra liða í rekstri bankans fara minnkandi og gerum ráð fyrir áframhaldandi þróun í þá veru.“ Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, samskiptasviði Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|