2017-01-05 11:02:21 CET

2017-01-05 11:02:21 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Arion Bank hf. - Fyrirtækjafréttir

Leiðrétting: Arion banki: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa - Frétt birt 2017-01-04 18:16:19


Leiðrétting: Heildar fjárhæð tilboða í ARION CBI 29 leiðrétt

Arion banki hf. lauk í dag útboði á þremur markflokkum sértryggðra skuldabréfa.

Heildareftirspurn í útboðinu var 3.420 m. kr. og fjöldi tilboða var 20.

Í verðtryggða flokkinn ARION CBI 29 bárust sjö tilboð að nafnvirði samtals
1.500 m. kr.,  á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,02% – 3,10%.  Samþykkt voru tilboð í
ARION CBI 29 að fjárhæð 1.420 m. kr. á 3,07% ávöxtunarkröfu. Heildarstærð
flokksins verður 24.500 m. kr. 

Í óverðtryggða flokkinn ARION CB 22 bárust átta tilboð að nafnvirði samtals
1.160 m. kr., á ávöxtunarkröfu  á bilinu 5,47%–5,54%.  Samþykkt voru tilboð í
ARION CB 22 að fjárhæð 1.040 m. kr. á 5,50% ávöxtunarkröfu. Heildarstærð
flokksins verður 21.200 m. kr. 

Í óvertryggða flokkinn ARION  CB 19 bárust fimm tilboð að nafnvirði samtals 760
m.kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,45%-5,50%. Samþykkt voru tilboð í ARION CB
19 að fjárhæð 160 m.kr. á 5,45% ávöxtunarkröfu. Heildarstærð flokksins verður
1.700 m. kr. eftir útgáfuna. 

Um er að ræða stækkun á þegar útgefnum skuldabréfaflokkum sem hafa verið til
viðskipta á Nasdaq Ísland. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á
Nasdaq Ísland þann 11. janúar 2017 

Samkvæmt útgáfuáætlun Arion banka er stefnt á að næsta útboð sértryggðra
skuldabréfa fari fram þann 1. febrúar næstkomandi. 

Í heild hefur Arion banki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 64.620 m. kr.

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskipasviðs
Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108.