|
|||
![]() |
|||
2011-10-13 13:45:42 CEST 2011-10-13 13:46:45 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 12 0116 og RIKV 12 0416Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 12 0116 og RIKV 12 0416 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar miðað við 360 daga ár (Actual/360). Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar: RIKV 12 0116: Alls bárust 29 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 19.825 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 18.825 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,185 (flatir vextir 3,25%). RIKV 12 0416: Alls bárust 20 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 8.623 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 5.143 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,510 (flatir vextir 2,99%). |
|||
|