|
|||
2016-12-12 11:07:43 CET 2016-12-12 11:07:43 CET REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirÚtboð Arion banka á 12, 6 og 5 mánaða víxlum – ARION 171220, ARION 170620 og ARION 170519Arion banki verður með víxlaútboð fimmtudaginn 15. desember 2016. Um er að ræða víxla til 12 mánaða, 6 mánaða og 5 mánaða með gjalddaga 20. desember 2017, 20. júní 2017 og 19. maí 2017. Markaðsviðskipti Arion banka hafa umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið verdbrefamidlun@arionbanki.is fyrir kl. 12:00 þann 15. desember en greiðslu- og uppgjörsdagur er 20. desember 2016. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|