|
|||
![]() |
|||
2012-03-16 17:18:59 CET 2012-03-16 17:20:00 CET SÄÄNNELTY TIETO Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirUndirritun samninga í tengslum viðútgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaðiÍ dag var skrifað undir samninga milli Lánamál ríkisins f.h. ríkissjóðs og aðalmiðlara í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði. Markmiðið með samningnum er að viðhalda aðgengi ríkissjóðs að lánsfé og efla verðmyndun ríkisverðbréfa á eftirmarkaði. Frá 1. apríl 2012 hafa fimm fjármálafyrirtæki heimild til að kalla sig „aðalmiðlara með ríkisverðbréf“. Þau eru: Íslandsbanki, MP banki, Landsbankinn, Arion banki og Straumur. Helstu atriði samningsins eru þessi: -- Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að útboðum ríkissjóðs. -- Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að verðbréfalánum sem Lánamál ríkisins veita fyrir hönd ríkissjóðs. -- Aðalmiðlari skuldbindur sig til að setja fram tilboð í útboðum ríkisverðbréfa fyrir a.m.k. 100 m.kr. að nafnverði. -- Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir alla markflokka ríkisverðbréfa og setur fram kaup- og sölutilboð að lágmarki 100 m.kr. að nafnvirði í hvern flokk í NASDAQ OMX kauphöllinni á Íslandi. -- Aðalmiðlari skuldbindur sig til þess að halda verðmun kaup- og sölutilboða innan tiltekinna marka sem nánar eru skilgreind í samningunum. -- Aðalmiðlara er skylt að endurnýja tilboð sín innan 10 mínútna frá því að þeim hefur verið tekið. Aðalmiðlara er heimilt að víkja út frá hámarksmun kaup- og sölutilboða ef tilteknum skilyrðum er fullnægt. -- Samningurinn gildir frá 1. apríl 2012 til 31. mars 2013. Meðfylgjandi er sýnishorn af samningi þar sem fram koma ýtarlegri upplýsingar um réttindi og skyldur aðalmiðlara ríkisverðbréfa. |
|||
|