2013-05-03 13:45:00 CEST

2013-05-03 13:45:02 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða í útboði óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 22 1026


Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 22 1026 fór fram hjá Lánamálum ríkisins
kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. 

                    Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 22 1026:

Alls bárust 24 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 7.200 m.kr. að nafnverði. 21
tilboðum var tekið fyrir 6.000 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 106,950 (6,25%
ávöxtunarkröfu). 



Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 7. maí.
Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í
hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er
8. maí 2013.