2010-10-22 13:45:26 CEST

2010-10-22 13:46:24 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða í útboði óverðtryggðra og verðtryggðra ríkisbréfa RIKB 16 1013 og RIKS 21 0414


Útboð á óverðtryggðum og verðtryggðum flokkum ríkisbréfa, RIKB 16 1013 og RIKS
21 0414 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig
háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta
ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. 


Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 16 1013:
Alls bárust 37 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 8.285 m.kr. að nafnverði. 27
tilboðum var tekið fyrir 5.975 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 99,945 (6,01%
ávöxtunarkröfu). 

RIKS 21 0414:
Alls bárust 15 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 5.990 m.kr. að nafnverði. 9
tilboðum var tekið fyrir 4.190 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 102,360 (3,52%
ávöxtunarkröfu). 


Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 26.
október. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 27. október 2010.