|
|||
2016-12-09 18:51:25 CET 2016-12-09 18:51:25 CET REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf. : Tilkynning um kaup Landsbankans hf. á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun - lok annars endurkaupatímabilsÞann 15. september 2016 birti Landsbankinn hf. tilkynningu um að bankinn byðist til að kaupa hluti af hluthöfum samkvæmt endurkaupaáætlun á þremur nánar tilgreindum endurkaupatímabilum. Annað endurkaupatímabilið var frá 31. október 2016 til og með 9. desember 2016. Á öðru endurkaupatímabili keypti Landsbankinn samtals 13.759.612 eigin hluti á genginu 10,6123 að kaupvirði 146.021.130 kr. Hvorki bankastjóri Landsbankans né framkvæmdastjórar hjá bankanum seldu hluti í bankanum á öðru endurkaupatímabili. Landsbankinn átti 338.071.878 eigin hluti fyrir viðskiptin á öðru endurkaupatímabili og á að því loknu 351.831.490 eigin hluti, eða sem nemur 1,5% af útgefnum hlutum í félaginu. Landsbankinn hefur keypt samtals 133.521.872 eigin hluti samkvæmt endurkaupaáætluninni eða sem nemur 0,6% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur kaupverð þeirra 1.391.141.455 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki samtals 480 milljónum hluta eða sem nemur 2% af útgefnu hlutafé. Landsbankinn býðst til að kaupa hluti af hluthöfum á þriðja endurkaupatímabili, sem stendur frá 13. febrúar 2017 til og með 24. febrúar 2017. Ef framangreindu hámarki verður náð fyrir þau tímamörk fellur endurkaupaáætlunin úr gildi. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995. [] |
|||
|