|
|||
2017-11-06 17:04:42 CET 2017-11-06 17:04:58 CET REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarLandsbankinn hf.: Niðurstöður víxlaútboðsLandsbankinn hf. lauk í dag lokuðu útboði á þremur víxlaflokkum, þegar útgefna flokkinum LBANK 180410 og nýjum flokkum, LBANK 180510 og LBANK 181112. Heildartilboð í útboðinu voru 14 talsins og námu samtals 1.820 m. kr. Fimm tilboð að fjárhæð 600 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 180410 og voru vextir tilboða á bilinu 4,30%-4,40%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn. Sjö tilboð að fjárhæð 1.100 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 180510 og voru vextir tilboða á bilinu 4,30%-4,40%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 420 m. kr. á 4,34% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 98,2122. Tvö tilboð að fjárhæð 120 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 181112 og voru vextir tilboða á bilinu 4,39%-4,65%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 10. nóvember 2017. Nánari upplýsingar um víxlana má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/vixlar. [] |
|||
|