|
|||
![]() |
|||
2017-08-02 19:03:10 CEST 2017-08-02 19:03:10 CEST REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarArion banki: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfaArion banki hf. lauk í dag útboði á þremur markflokkum sértryggðra skuldabréfa. Heildareftirspurn í útboðinu var 3.000 m. kr. og fjöldi tilboða var 14. Í verðtryggða flokkinn ARION CBI 25 bárust 10 tilboð að nafnvirði samtals 2.360 m.kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,65% - 2,98%. Samþykkt voru tilboð í ARION CBI 25 að fjárhæð 1.960 m.kr. á 2,70% ávöxtunarkröfu. Heildarstærð flokksins verður 12.200 m.kr. eftir útgáfuna. Í óverðtryggða flokkinn ARION CB 22 bárust 4 tilboð að nafnvirði samtals 640 m. kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,25%–5,31%. Samþykkt voru tilboð í ARION CB 22 að fjárhæð 400 m.kr. á 5,25% ávöxtunarkröfu. Heildarstærð flokksins verður 23.440 m.kr. eftir útgáfuna. Engin tilboð bárust í óverðtryggða flokkinn ARION CB 19. Um er að ræða stækkun á þegar útgefnum skuldabréfaflokkum sem hafa verið til viðskipta á Nasdaq Ísland. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Ísland þann 9 ágúst 2017. Samkvæmt útgáfuáætlun Arion banka er stefnt á að næsta útboð sértryggðra skuldabréfa fari fram þann 6. september næstkomandi. Í heild hefur Arion banki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 80.620 m. kr. Nánari upplýsingar veitir Kristín Erla Jónsdóttir, Fjármögnun Arion banka, kristin.erla.jonsdottir@arionbanki.is, s: 444 6272. |
|||
|