2009-06-26 11:24:04 CEST

2009-06-26 11:25:04 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

UNDIRRITUN SAMNINGA Í TENGSLUM VIÐ ÚTGÁFU ÍBÚÐABRÉFA


UNDIRRITUN SAMNINGA Í TENGSLUM VIÐ ÚTGÁFU ÍBÚÐABRÉFA OG VIÐSKIPTAVAKT Á
EFTIRMARKAÐI 

Í gær 25. Júní, var skrifað undir samninga hjá Íbúðalánasjóði í tengslum við
útgáfu Íbúðabréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði. Markmiðið með samningnum er
að styrkja aðgang Íbúðalánasjóðs að lánsfé og efla verðmyndun á eftirmarkaði. 
Frá 1. júlí  2009 hafa fjórar fjármálastofnanir heimild til að kalla sig:"Aðalmiðlara með Íbúðabréf". Þær eru: Nýi Glitnir banki hf., Nýi Kaupþing banki
hf., MP banki hf. og NBI hf. 

Aðalmiðlarar/Viðskiptavaki hafa einir aðgang að útboðum Íbúðalánasjóðs.

Aðalmiðlarar/Viðskiptavakar hafa einir aðgang að verðbréfalánum sem
Íbúðalánasjóður veitir. 

Aðalmiðlari/Viðskiptavaki skuldbindur sig til að setja fram markaðsmyndandi
tilboð í útboðum Íbúðabréfa fyrir a.m.k. 600 milljónir króna. 

Aðalmiðlari/viðskiptavaki er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir alla markflokka
Íbúðabréfa og setur fram kaup- og sölutilboð að lágmarki 100 m.kr. að nafnvirði
í hvern flokk Íbúðabréfa í OMX Nordic Exchange á Íslandi. 

Aðalmiðlari/viðskiptavaki skuldbindur sig til þess að verðmunur kaup- og
sölutilboða hans haldist innan tiltekinna marka sem nánar eru skilgreind í
samningunum. 

Aðalmiðlara/viðskiptavaka er skylt að endurnýja tilboð sín innan 10 mínútna frá
því að þeim hefur verið tekið. Ef aðalmiðlari á viðskipti á einum viðskiptadegi
fyrir 500 m.kr. að nafnvirði í tilteknum flokki er honum heimilt að víkja út
frá hámarksmun kaup-og sölutilboða. 

Samningurinn gildir frá 1. júlí 2009 til 30. júní 2010. Þóknun til allra
aðalmiðlara/viðskiptavaka íbúðabréfa á samningstímanum verður 16,25 milljónir
króna fyrir viðskiptavakt á eftirmarkaði og 0,15% þóknun í útboðum Íbúðabréfa. 

Meðfylgjandi er sýnishorn af samningi þar sem fram koma ýtarlegri upplýsingar
um réttindi og skyldur samningsaðila.