|
|||
![]() |
|||
2008-01-15 17:09:53 CET 2008-01-15 17:09:53 CET REGULATED INFORMATION Exista hf. - Ársreikningur- Kynning á ársuppgjöri 2007 og aðalfundur 2008Exista hf. mun birta afkomu ársins 2007 eftir lokun markaða fimmtudaginn 31. janúar nk. Kynningarfundur í Reykjavík 1. febrúar Kynning á ársuppgjöri 2007 fer fram föstudaginn 1. febrúar og hefst stundvíslega kl. 8:30. Þar munu stjórnendur félagsins gera grein fyrir ársreikningnum og svara fyrirspurnum. Kynningin fer fram í höfuðstöðvum félagsins að Ármúla 3. Húsið opnar kl. 8:00 og verður boðið upp á léttan morgunverð áður en fundurinn hefst. Kynningarfundurinn fer fram á ensku og er opinn hluthöfum og öðrum markaðsaðilum. Netvarp og símafundur 1. febrúar Kynningarfundinum í Reykjavík verður varpað í beinni útsendingu á vef félagsins www.exista.com og hefst netvarpið kl. 8:30. Jafnframt er hægt að taka þátt í fundinum símleiðis og leggja fram spurningar með því að hringja í síma 800 8660 eða +44 (0)20 3043 2436 (breskt númer). Eftir fundinn má nálgast kynningarefni og upptöku af fundinum á vefsíðu Exista, www.exista.com Kynningarfundur í London 4. febrúar Kynning á ársuppgjöri 2007 fer fram á skrifstofum Exista í London mánudaginn 4. febrúar og hefst kl. 9:00. Þar munu stjórnendur félagsins gera grein fyrir ársreikningnum og svara fyrirspurnum. Fundurinn fer fram á skrifstofu félagsins að 3 Sheldon Square, Paddington Central, London W2 6HY. Skráning hefst kl. 8:30 og verður boðið upp á léttan morgunverð áður en fundur hefst. Aðalfundur 2008 Aðalfundur Exista hf. verður haldinn fimmtudaginn 28. febrúar 2008, kl. 17:00 á hótel Hilton Reykjavík Nordica. Fundurinn verður nánar auglýstur síðar. |
|||
|