2008-01-31 07:45:00 CET

2008-01-31 07:45:00 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Kaupþing banki hf. - Ársreikningur

- Afkoma Kaupþings banka hf. á árinu 2007


Hagnaður eftir skatta 70,0 milljarðar króna 

• Hagnaður hluthafa eftir skatta á árinu nam 70,0 mö.kr (85,3 ma.kr. árið 2006)
• Hagnaður hluthafa eftir skatta á fjórða ársfjórðungi nam 9,6 mö.kr. (18,1
ma.kr. á sama tímabili 2006) 
• Arðsemi eigin fjár á árinu var 23,5%
• Hagnaður á hlut á árinu var 95,2 kr. (127,1 kr. árið 2006). Hagnaður á hlut á
fjórða ársfjórðungi var 13,4 kr. (26,1 kr. á sama tímabili 2006) 
• Hreinar vaxtatekjur á fjórða ársfjórðungi jukust um 60,3% á milli ára, námu
23,7 mö.kr. 
• Hreinar þóknanatekjur á fjórða ársfjórðungi jukust um 19,0% á milli ára, námu
14,1 ma.kr. 
• Gengistap í Fjárstýringu nam 11,6 mö.kr. á fjórða ársfjórðungi sem að mestu
má rekja til lækkunar á gangvirði afleiðusamninga, skuldabréfaeigna og
eignavarðra verðbréfa 
• Heildareignir námu 5.347,3 milljörðum króna í lok ársins - jukust um 35,8% á
föstu gengi á árinu, en um 31,9% í íslenskum krónum 
• Innlán sem hlutfall af heildarútlánum til viðskiptavina jukust verulega á
árinu eða úr 29,6% í upphafi árs í 41,8% við lok árs 
• Í ljósi þess óróleika sem er á fjármálamörkuðum hafa Kaupþing banki og
seljendur NIBC tilkynnt að þeir hafi ákveðið að falla frá fyrirhugaðri yfirtöku
Kaupþings á NIBC 
• Stjórn bankans mun leggja til við aðalfund að hluthöfum verði greiddar 14.810
milljónir króna í arð vegna ársins 2007 eða 20 krónur á hlut, sem svarar til
21% af hagnaði. 

Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri 
"Árið 2007 var gott hjá Kaupþingi. Framan af ári gekk sérlega vel en
viðsnúningur á alþjóðlegum fjármálamörkuðum setti mark sitt á seinni hluta
ársins. Arðsemi eigin fjár nam 23,5% sem verður að teljast vel viðunandi. Vel
gengur í allri grunnstarfsemi bankans og hafa vaxtatekjur bankans aldrei verið
hærri en nú á fjórða ársfjórðungi. 

Óhagstætt rekstrarumhverfi leiðir til breyttra áherslna í rekstrinum og draga
mun úr vexti efnahagsreiknings bankans. Áhersla stjórnenda er nú fyrst og
fremst á að efla þóknanatekjur og ná fram hagræðingu í rekstrinum. Jafnframt er
verið að breyta fjármögnun bankans með aukinni áherslu á innlán. Á fjórða
ársfjórðungi var kynntur nýr innlánabanki á netinu, Kaupthing Edge en hann
hefur þegar verið settur upp í fimm löndum. Það hefur meðal annars skilað sér í
því að á síðustu fjórum mánuðum hafa tæplega 30 þúsund viðskiptavinir komið í
innlánaviðskipti við bankann. 

Kaupþing hefur gert samkomulag við J.C. Flowers um að hætta við kaupin á
hollenska bankanum NIBC vegna óhagstæðra skilyrða á fjármálamörkuðum. Ekkert
verður því af fyrirhuguðu hlutafjárútboði. Þessi niðurstaða er vonbrigði fyrir
stjórnendur bankans en um leið styrkir þessi ákvörðun lausafjárstöðu Kaupþings,
sem er nú mjög góð." 

Nánari upplýsingar 
Nánari upplýsingar um uppgjörið veita Jónas Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri
Samskiptasviðs, í síma 444-6112 og Ólöf Hildur Pálsdóttir, Fjárfestatengslum í
síma 444-6569 (ir@kaupthing.com). Upplýsingar um Kaupþing er einnig hægt að
nálgast á heimasíðum bankans www.kaupthing.is og www.kaupthing.com.