|
|||
![]() |
|||
2008-01-31 11:02:14 CET 2008-01-31 11:02:14 CET REGULATED INFORMATION Kaupþing banki hf. - Fyrirtækjafréttir- Fitch staðfestir lánshæfiseinkunn Kaupþings banka - horfum breytt í stöðugarLánshæfismatsfyrirtækið Fitch Ratings hefur tilkynnt að það hafi staðfest lánshæfiseinkunnir Kaupþings banka, það er langtímaeinkunn A, skammtímaeinkunn F1, óháð einkunn B/C, stuðningseinkunn 2, stuðningseinkunnargólf BBB. Fitch hefur breytt horfum fyrir langtímaeinkunn úr neikvæðum í stöðugar. Fitch segir m.a. í tilkynningu sinni: "Matið á Kaupþingi tekur tillit til sterkrar stöðu á íslenskum markaði, betri dreifingu hagnaðar og eigna, gæði eigna og viðunandi eiginfjárhlutfalls og arðsemi." Sjá nánari upplýsingar á neðangreindri slóð: http://www.kaupthing.com/Investors/Ratings/Fitch Nánari upplýsingar Nánari upplýsingar veitir Guðni Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Fjárstýringar, í síma 444 6126 og Jónas Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri Samskiptasviðs, í síma 444 6112. |
|||
|