|
|||
![]() |
|||
2008-02-01 10:55:14 CET 2008-02-01 10:55:29 CET REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Marel Food Systems hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum- Erik Kaman - fjármálastjóri Marel Food SystemsMarel Food Systems hefur ráðið Erik Kaman sem fjármálastjóra (CFO) samstæðunnar. Hann tekur sæti í framkvæmdastjórn samstæðunnar og tekur til starfa í apríl næstkomandi. Fram að þeim tíma verður fjármálastjórn Marel Food Systems áfram í höndum Kristjáns Þorsteinssonar. Kristján, sem hefur gegnt því starfi sl. níu ár, mun taka við starfi framkvæmdastjóra fjármögnunar og áhættustýringar hjá félaginu. Erik Kaman hefur starfað hjá Stork síðastliðin 16 ár, nú síðast sem fjármálastjóri Stork Arerospace Industrie, en þar áður sem framkvæmdastjóri stefnumótunar og fjármála hjá móðurfélagi Stork samstæðunnar. |
|||
|