2014-07-30 17:43:44 CEST

2014-07-30 17:44:45 CEST


SÄÄNNELTY TIETO

Tämä tiedote on korjattu Klikkaa nähdäksesi korjattu tiedote

Englanti Islanti
Icelandair Group hf. - Ársreikningur

Verkfallsaðgerðir flugstétta höfðu áhrif á rekstur 2. ársfjórðungs


  -- Hagnaður eftir skatta nam 22,4 milljónum USD samanborið við 18,5 milljónir
     USD árið áður.
  -- EBITDA nam 45,2 milljónum USD samanborið við 42,9 milljónir USD árið áður.
  -- Heildartekjur jukust um 12%.
  -- Neikvæð áhrif verkfallsaðgerða flugstétta á uppgjör annars ársfjórðungs
     námu 3,5 milljónum USD.
  -- Eiginfjárhlutfall 34% í lok júní.
  -- Handbært fé frá rekstri 83,6 milljónir USD samanborið við 106,4 milljónir
     USD árið áður.



Björgólfur Jóhannsson, forstjóri:

„Vinnudeilur við flugstéttir höfðu áhrif á rekstur annars ársfjórðungs. Vegna
kjaradeilna þurfti að fella niður 157 flug og breyta bókunum yfir 22 þúsund
farþega. Tekjutap og beinn kostnaður Icelandair Group vegna þessa nam um 3,5
milljónum USD. Hagnaður Icelandair Group á öðrum ársfjórðungi nam 22,4
milljónum USD og jókst um 3,9 milljónir USD á milli ára. Þrátt fyrir að afkoma
af millilandastarfsemi hafi verið undir væntingum vegna verkfallsaðgerða þá
gekk önnur starfsemi samstæðunnar vel. Mikil fjölgun ferðamanna til Íslands
skilaði sér í góðri afkomu félaga okkar í ferðatengdri þjónustu. Afkoma í
fraktstarfsemi félagsins var góð og jókst á milli ára. Þá hafði bakfærsla á
niðurfærslu krafna í leiguflugsstarfsemi félagsins jákvæð áhrif á afkomuna. 

Fjárhagsleg staða félagsins er sterk.  Heildareignir nema nú 947,6 milljónum
USD og eiginfjárhlutfallið var 34% í lok fjórðungsins.  Vaxtaberandi skuldir
hafa farið lækkandi undanfarin ár og nema nú 60,2 milljónum USD á sama tíma og
handbært fé og markaðsverðbréf nema 283,3 milljónum USD. Bókunarstaða í
millilandaflugi fyrir komandi mánuði hefur batnað eftir að vinnudeilum lauk og
almennar horfur í rekstri samstæðunnar eru góðar. Miðað við núverandi
rekstrarforsendur er gert ráð fyrir að EBITDA ársins muni verða á bilinu
145-150 milljónir USD, sem er hækkun frá því sem tilkynnt var um í júní. Betri
heimtur krafna í leiguflugstarfsemi vega þungt í hækkuninni.“ 



Frekari upplýsingar veita:

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri
bubbi@icelandairgroup.is
896 1455

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála
bogi@icelandairgroup.is
665 8801