2015-02-18 16:31:00 CET

2015-02-18 16:31:03 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 17 0206 og RIKB 20 0205


Föstudaginn 20. febrúar kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins með
tilboðsfyrirkomulagi. 

Boðin verða til sölu óverðtryggð bréf í flokkunum RIKB 17 0206 og RIKB 20 0205.
Heildarfjárhæð samþykktra tilboða verður tilkynnt að loknu útboði. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð
sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa
er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir
fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir munu Lánamál ríkisins bjóða
jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í útboðinu, til
aðalmiðlara á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 24.
febrúar 2015. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði
öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagurinn 25. febrúar 2015.



                                  SKIPTIÚTBOÐ

Aðilar eiga þess kost í útboðinu að kaupa bréf í RIKB 17 0206 og RIKB 20 0205
með sölu á RIKB 15 0408, sem fellur á gjalddaga 8. apríl nk. Lánamál ríkisins
kaupa RIKB 15 0408 á fyrirfram ákveðnu verði þ.e. hreina verðinu 99,944
(103,926192 með áföllum vöxtum m.v. 100 kr. nafnverðseiningu) m.v. uppgjör 25.
febrúar 2015. Til skýringar, jafngildir verðið 4,80% í flötum vöxtum. Andvirði
bréfanna ásamt áföllnum vöxtum kemur þá sem greiðsla fyrir kaupum á nýjum
bréfum. Þeir sem vilja nota RIKB 15 0408 sem greiðslu í útboðinu þurfa að
tilkynna Lánamálum ríkisins það eigi síðar en kl. 14:00 þriðjudaginn 24.
febrúar 2015. 

Fjárfestar sem eiga bréf í RIKB 15 0408 og hafa áhuga á að endurfjárfesta í
öðrum ríkisbréfum eru sérstaklega hvattir til þess að taka þátt í þessu útboði
með því að hafa samband við næsta banka. 

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569
9635.