|
|||
![]() |
|||
2009-02-05 17:05:11 CET 2009-02-05 17:06:11 CET REGULATED INFORMATION Landic Property hf. - Fyrirtækjafréttir- Tilkynning vegna skuldabréfaflokka útgefnum af Landic PropertyEins og áður hefur komið fram vinnur Landic Property að fjárhagslegri endurskipulagningu á rekstri félagsins. Í tengslum við endurskipulagninguna eiga sér stað viðræður við helstu kröfuhafa félagsins, meðal annars helstu eigendur skuldabréfaflokkanna STOD 03 1, STOD 06 1, STOD 06 2 og STOD 09 0306 þar sem rætt er um skilmálabreytingu á skuldabréfaflokkunum. Þar af leiðandi munu greiðslur af skuldabréfaflokkunum ekki verða greiddar í febrúar og mars 2009. Félagið mun senda frá sér upplýsingar um framgang viðræðnanna fyrir lok febrúar 2009. Frekari upplýsingar veitir: Viðar Þorkelsson, forstjóri Landic Property Sími: + 354 669 4444 |
|||
|