2012-03-09 12:46:07 CET

2012-03-09 12:47:08 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða í útboði óverðtryggða ríkisbréfa RIKB 14 0314


Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 14 0314 fór fram hjá Lánamálum ríkisins
kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. 

                    Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 14 0314:

Alls bárust 36 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 5.950 m.kr. að nafnverði. 32
tilboðum var tekið fyrir 5.200 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 100,000 (4,75%
ávöxtunarkröfu). 

Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 13.
mars. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 14. mars 2012.