2011-05-26 12:43:26 CEST

2011-05-26 12:44:26 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Icelandair Group hf. - Fyrirtækjafréttir

Viljayfirlýsing um sölu á pöntunum á þremur B787 Dreamliner


IG Invest, hlutdeildarfélag Icelandair Group, hefur undirritað viljayfirlýsingu
við Norwegian Air Shuttle þess eðlis að Norwegian gangi inn í pöntun félagsins
á þremur B787 Dreamliner flugvélum frá Boeing. Samningurinn við Norwegian mun
ekki hafa nein rekstrarleg áhrif á Icelandair Group. Hins vegar mun Icelandair
Group losna undan ábyrgð fyrir kaupsamningnum og fjármögnun vélanna. 

IG Invest er eignarhaldsfélag um flugvélar og flugvélatengdar eignir. Eftir
viðskiptin mun félagið eiga pöntun á einni B787 flugvél. 



Nánari upplýsingar veitir:

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group gsm: 665 8801