|
|||
2016-01-07 10:28:00 CET 2016-01-07 10:28:00 CET REGULATED INFORMATION This message has been corrected. Click here to view the corrected message Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirArion banki stækkar markflokka sértryggðra skuldabréfaArion banki hf. lauk í gær útboði á tveimur markflokkum sértryggðra skuldabréfa sem skráðir eru á Nasdaq OMX Íslandi. Verðtryggði flokkurinn ARION CBI 21 var stækkaður um 340.000.000 kr. á ávöxtunarkröfunni 3,06% og óverðtryggði flokkurinn ARION CB 22 var stækkaður um 2.980.000.000 kr. á ávöxtunarkröfunni 6,68% Heildareftirspurn í útboðinu var 6.420.000.000 kr. Um er að ræða stækkun á þegar útgefnum skuldabréfaflokkum sem teknir hafa verið til viðskipta á Nasdaq OMX Íslandi. Samkvæmt útgáfuáætlun Arion banka er stefnt á næsta útboð sértryggðra skuldabréfa fram þann 3. febrúar næstkomandi. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskipasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|