2017-05-09 17:58:19 CEST

2017-05-09 17:58:19 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf. : Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa


Landsbankinn  lauk í dag  útboði sértryggðra skuldabréfa  þar sem fjórir flokkar
voru boðnir til sölu.

Heildartilboð  í  útboðinu  voru  29 talsins  og  námu  samtals  3.540 m. kr. að
nafnverði.

Fimm  tilboð að fjárhæð 400 m. kr. að  nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 19 á
ávöxtunarkröfu á bilinu 5,28%-5,30%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.

Fjögur tilboð að fjárhæð 220 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 21 á
ávöxtunarkröfu á bilinu 5,29%-5,31%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.

Ellefu  tilboð að  fjárhæð 1.700 m.  kr. að  nafnverði bárust í nýjan markflokk,
LBANK  CBI 24 á ávöxtunarkröfu á  bilinu 2,95%-3,14%. Tilboðum að fjárhæð 540 m.
kr.  var  tekið  í  flokkinn  á  ávöxtunarkröfunni  2,98%. Til  viðbótar  verður
flokkurinn   stækkaður   um  960 m.  kr.  vegna  verðbréfalána  í  tengslum  við
viðskiptavakt. Heildarstærð flokksins við útgáfu verður 1.500 m. kr.

Níu tilboð að fjárhæð 1.220 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 28 á
ávöxtunarkröfu  á bilinu 2,84%-2,90%. Tilboðum að fjárhæð 1.100 m. kr. var tekið
í  flokkinn á ávöxtunarkröfunni 2,88%. Heildarstærð flokksins verður 6.920 m.kr.
eftir viðbótarútgáfuna.

Stefnt  er að  töku skuldabréfanna  til viðskipta  á Nasdaq Iceland þann 16. maí
2017. Arion  banki,  Íslandsbanki  og  Kvika  sinna viðskiptavakt með sértryggða
skuldabréfaflokka Landsbankans.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan
í  lög nr. 11/2008 og reglur  Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar
um  skuldabréfin og  tryggingasafnið má  finna á  vefsvæði fjármögnunar bankans,
www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.


[]