2012-10-11 13:45:00 CEST

2012-10-11 13:45:02 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 13 0115 OG RIKV 13 0415


Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 13 0115 og RIKV 13 0415  með
tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. 

Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama
verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.
Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar
miðað við 360 daga ár (Actual/360). 

                    Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar:

RIKV 13 0115:

Alls bárust 16 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 12.150 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 5.750 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,215 (flatir
vextir 3,10%). 

RIKV 13 0415:

Alls bárust 11 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 2.680 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 1.180 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,315 (flatir
vextir 3,39%).