|
|||
![]() |
|||
2016-11-09 16:31:01 CET 2016-11-09 16:31:01 CET REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtboð ríkisvíxla RIKV 17 0515Föstudaginn 11. nóvember kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í flokknum RIKV 17 0515 sem er með gjalddaga 15. maí 2017. Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Greiðslu- og uppgjörsdagur er þriðjudagurinn 15. nóvember 2016. Sótt verður um að RIKV 17 0515 verði tekinn til viðskipta í NASDAQ á Íslandi þriðjudaginn 15. nóvember 2016. Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569 9635. |
|||
|