|
|||
2013-12-04 13:39:33 CET 2013-12-04 13:40:34 CET REGULATED INFORMATION Orkuveita Reykjavíkur - FyrirtækjafréttirUppskipting Orkuveitunnar hefur ekki áhrif á lánshæfiseinkunnReykjavík, 2013-12-04 13:39 CET (GLOBE NEWSWIRE) -- Vegna frétta um uppskiptingu Orkuveitu Reykjavíkur nú á dögunum taldi Reitun ástæðu til að fara yfir væntanlegar breytingar á skipulagi félagsins með stjórnendum þess. Fram hefur farið mikil vinna innan Orkuveitunnar til að meta þær leiðir sem hægt væri að fara við uppskiptingu félagsins. Meðal annars hafa verið gerðar sviðsmynda- og næmnigreiningar á því hvernig uppskipt Orkuveita myndi standast breytingar á álverði og gengi krónunnar. Niðurstaða Reitunar er sú að uppskipting Orkuveitunnar hefur ekki áhrif á lánshæfismat fyrirtækisins á Orkuveitunni, sem er því óbreytt, B+ með jákvæðum horfum. Matsskýrsla Reitunar er í viðhengi. |
|||
|