2008-07-31 11:27:25 CEST

2008-07-31 11:28:18 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Bakkavör Group hf. - Ársreikningur

- Afkoma Bakkavör Group á fyrri helmingi ársins 2008: EBITDA 9,2 milljarðar króna á fyrstu sex mánuðum ársins


• Velta 126,9 ma.kr. (803,0 m. punda) á fyrstu sex mánuðum ársins, 11% aukning,
  og 67,3 ma.kr. (425,7 m. punda) á öðrum ársfjórðungi, 14% aukning 

• Vöxtur í undirliggjandi rekstri 0,5% á fyrstu sex mánuðum ársins og 2,5% á
  öðrum ársfjórðungi 

• EBITDA 9,2 ma.kr. (58,5 m. punda) á fyrstu sex mánuðum ársins, 23% lækkun, og
  5,1 ma.kr. (32,2 m. punda) á öðrum ársfjórðungi, 21% lækkun, að meðtöldum 0,5
  ma. kr. (3,1 m. punda) kostnaði vegna hagræðingar í rekstri 

• EBITDA hlutfall 7,3% fyrstu sex mánuði ársins og 7,6% á öðrum ársfjórðungi
  (7,7% á fyrstu sex mánuðum ársins og 8,3% á öðrum ársfjórðungi að undanskildum
  kostnaði við endurskipulagningu) 

• Rekstrarhagnaður (EBIT) 5,8 ma.kr. (36,4 m. punda) fyrstu sex mánuði ársins,
  36% lækkun, og á öðrum ársfjórðungi 3,2 ma.kr. (20,5 m. punda), 35% lækkun 

• Tap af skiptasamningi félagsins vegna 10.9% hlutar í Greencore Group PLC 7,3
  ma.kr. (46,2 milljónir punda) á fyrstu sex mánuðum ársins, þar af 4,8 ma.kr.
  (30,4 milljónir punda) á öðrum ársfjórðungi, vegna áhrifa virðisbreytingar
  skiptasamningsins 

• Handbært fé frá rekstri 2,5 ma.kr. (15,5 m. punda) fyrstu sex mánuði ársins,
  75% lækkun, og 3,1 ma.kr. (19,8 m. punda) í ársfjórðungnum, 40,0% lækkun 

• Arðsemi eigin fjár 7,3% á fyrstu sex mánuðum ársins án áhrifa
  virðisbreytingar skiptasamnings, samanborið við 20,3% á sama tímabili 2007 

• Hagnaður á hlut 0,4 pens á fyrstu sex mánuðum ársins, án áhrifa
  virðisbreytingar skiptasamnings 

• Félagið styrkti starfsemi sína á alþjóðavettvangi með kaupum á fimm
  fyrirtækjum á tímabilinu - í Bandaríkjunum, Kína, Hong Kong og á Ítalíu.
  Ennfremur lauk félagið kaupum á eftirstandandi 49% hlut í Heli Food Fresh,
  Tékklandi, á tímabilinu 

• Kaup á Fram Foods S.A., dótturfélagi Fram Foods hf. í Frakklandi, í júlí 2008

Ágúst Guðmundsson, forstjóri:

„Afkoma Bakkavarar fyrstu sex mánuði ársins er í samræmi við væntingar
stjórnenda. Sala jókst á öðrum ársfjórðungi þrátt fyrir erfiðar aðstæður á
mörkuðum, sem héldu áfram að hafa áhrif á afkomu félagsins, svo sem
verðhækkanir á hráefni, aukinn orkukostnaður og gengisstyrking evru gagnvart
pundi. Aðrir þættir sem höfðu neikvæð áhrif voru kostnaður vegna hagræðingar í
framleiðslu félagsins á tilbúnum réttum, óhagstætt veður yfir sumarmánuðina í
Bretlandi auk þess sem dró úr væntingum neytenda. 

Í apríl greindum við frá því að félagið hefði gert skiptasamning um hluti í
Greencore Group. Á tímabilinu lækkaði gengi bréfa Greencore verulega sem hafði
umtalsverð áhrif á afkomu Bakkavarar. Þrátt fyrir þetta teljum við samninginn
endurspegla trú okkar á markaðinn fyrir fersk tilbúin matvæli. Greencore er með
sterka samkeppnisstöðu í lykilvöruflokkum sínum og teljum við félagið vel í
stakk búið til að styrkja markaðsstöðu sína frekar í framtíðinni, til ávinnings
fyrir hluthafa þegar til lengri tíma er litið. 

Við gerum ráð fyrir því að viðskiptaumhverfið verði áfram krefjandi á síðari
hluta ársins. Við munum áfram vinna að því að auka markaðshlutdeild okkar,
draga úr áhrifum verðhækkana á hráefni, auka skilvirkni og hagræða í rekstri.
Gert er ráð fyrir að þetta muni skila félaginu ávinningi á næsta ári. 

Þrátt fyrir núverandi aðstæður hefur stefna Bakkavarar sjaldan verið skýrari og
við munum halda áfram að styrkja stöðu félagsins á alþjóðavettvangi. Bakkavör
er í sérstöðu á markaðnum fyrir fersk tilbúin matvæli og vegna mikils
sveigjanleika í framleiðslu og rekstri erum við vel í stakk búin til að
bregðast hratt við breytilegum aðstæðum á markaði. Við sjáum umtalsverð
tækifæri til vaxtar í Bretlandi og munum ennfremur halda áfram að styrkja stöðu
félagsins í Evrópu, Asíu og í Bandaríkjunum og mæta þar aukinni eftirspurn
neytenda eftir ferskum tilbúnum matvælum.“