|
|||
2017-01-26 17:10:45 CET 2017-01-26 17:10:45 CET REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarLandsbankinn hf. : Niðurstöður víxlaútboðsLandsbankinn hf. lauk í dag lokuðu útboði á þremur víxlaflokkum, þegar útgefnum flokki, LBANK 170710 og nýjum flokkum, LBANK 170810 og LBANK 180212. Heildartilboð í útboðinu voru 31 talsins og námu samtals 5.320 m. kr. Tólf tilboð að fjárhæð 1.800 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 170710 og voru vextir tilboða á bilinu 5,24%-5,50%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 1.200 m. kr. á 5,31% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,8354. Þrettán tilboð að fjárhæð 2.400 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 170810 og voru vextir tilboða á bilinu 5,24%-5,50%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 1.940 m. kr. á 5,35% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,3806. Sex tilboð að fjárhæð 1.120 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 180212 og voru vextir tilboða á bilinu 5,50%-5,70%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 720 m. kr. á 5,56% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 94,6359. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 10. febrúar 2017. Nánari upplýsingar um víxlana má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/vixlar. [] |
|||
|