2010-06-30 12:01:29 CEST

2010-06-30 12:02:27 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Icelandair Group hf. - Fyrirtækjafréttir

Icelandair bætir 200 flugum við vetraráætlun


Áætlun Icelandair í vetur verður um 14% umfangsmeiri en hún var síðasta vetur.
Icelandair mun fljúga til alls 15 áfangastaða austan hafs og vestan. Að
meðaltali verða 82 flug frá Íslandi í viku á tímabilinu frá nóvember og út
mars, eða 10 fleiri en á síðasta vetri. Á fimm mánaða tímabili, í nóvember,
desember, janúar og febrúar og mars verður flugum fjölgað um 200 í heild.
Flogið verður til 11 borga í Evrópu og 4 borga í Norður-Ameríku. 

Helsta breytingin frá fyrra vetri er að flugferðum er fjölgað bæði til borga
Evrópu, svo sem Parísar, Frankfurt, Amsterdam og Kaupmannahafnar og einnig til
Seattle, New York og Orlando í Bandaríkjunum. Að auki verður flogið til
Helsinki fram yfir áramót, sem er 2 mánuðum lengur en undanfarin ár. Að lokum
verður flogið til Munchen í Þýskalandi frá lokum janúar fram til mars, en það
er í fyrsta sinn sem félagið flýgur til Munchen á þessum tíma árs. Einnig er 
flug til fjölmargra áfangastaða aukið bæði nú haust og næsta vor, þ.e. í
október og apríl/maí til þess að lengja ferðamannatímann. "Þrátt fyrir miklar sveiflur í rekstrarumhverfinu er útlitið nokkuð bjart og
við erum að auka töluvert við framboðið milli ára", segir Birkir Hólm Guðnason,
framkvæmdastjóri Icelandair. "Eftir að efnahags- og gengishrunið á árinu 2008
stöðvaði nánast utanferðir Íslendinga breyttum við áherslum hratt og náðum að
auka mjög hlutfall erlendra ferðamanna í vélum okkar í staðinn. Eldgosið í vor
dró hins vegar mjög úr bókunum þeirra tímabundið en 
Norður-Atlantshafsmarkaðurinn hefur verið sterkur. Nú sjáum við að bókanir
Íslendinga til útlanda eru að aukast og bókanir til landsins í haust lofa góðu
í kjölfar kynningarátaksins Inspired by Iceland. Þessi mikli sveigjanleiki
Icelandair og geta til þess að laga sig að sveiflum gefur okkur tækifæri til
þess að bæta nú við framboðið", segir Birkir. 

Í vetur mun Icelandair fljúga til höfuðborga norðurlanda, Kaupmannahafnar,
Osló, Stokkhólms og Helsinki, til London, Manchester og Glasgow  í Bretlandi og
til Amsterdam, Frankfurt, Parísar og Munchen á meginlandi Evrópu. Áfangastaðir
vestanhafs eru Boston, New York, Orlando og Seattle. Nú í sumar flýgur
Icelandair auk þess til borganna Stavanger, Bergen, Þrándheims Helsinki,
Brussel, Berlín, Dusseldorf, Munchen, Barcelona, Madrid, Mílanó, Halifax,
Toronto og Minneapolis.