2013-05-13 13:45:00 CEST

2013-05-13 13:45:02 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 13 0815 OG RIKV 13 1115


Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 13 0815 og RIKV 13 1115 með
tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. 

Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama
verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.
Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar
miðað við 360 daga ár (Actual/360). 

                    Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar:

RIKV 13 0815:

Alls bárust 9 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 7.092 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 6.692 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,252 (flatir
vextir 2,95%). 

RIKV 13 1115:

Alls bárust 8 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 1.500 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 700 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,416 (flatir vextir
3,15%).